Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
banner
   lau 25. apríl 2026 19:05
Snæbjört Pálsdóttir
„Hlýtur að vera ótrúlega erfitt að spá í þessa deild“
Kvenaboltinn
Málfríður Anna Eiríksdóttir, fyrirliði Vals var ánægð með sigurinn í dag
Málfríður Anna Eiríksdóttir, fyrirliði Vals var ánægð með sigurinn í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Málfríður Anna Eiríksdóttir, fyrirliði Vals, var ánægð eftir 2-1 sigur á nýliðum Grindavíkur/Njarðvíkur á Hlíðarenda í fyrstu umferð Bestu deildarinnar.

„Bara frábær tilfinning að vinna. Við áttum alveg erfitt uppdráttar á löngum köflum í þessum leik og yndisleg tilfinning þegar dómarinn flautaði. Að ná í fyrsta sigur sumarsins í fyrsta leik er nákvæmlega eins og við viljum byrja,“ sagði Málfríður eftir leik.


Lestu um leikinn: Valur 2 -  1 Grindavík/Njarðvík


Hún viðurkenndi að frammistaðan hefði ekki alltaf verið upp á sitt besta, en liðið hefði sýnt karakter þegar mest á reyndi.

„Við reyndum að stíga aðeins upp í þær í seinni hálfleik og fara upp með baráttuna. Þetta var kannski ekki neinn stórkostlegur fótboltaleikur, en eftir að við náðum að skora mark númer tvö fannst mér við bara sýna karakter og sigla þessu heim.“

Valur hefur gengið í gegnum breytingar frá síðasta tímabili, en samkvæmt fyrirliðanum er liðið á góðum stað.


„Stemningin er mjög góð og ég held að þessi sigur gefi okkur rosalega mikið sjálfstraust. Við erum búnar að vera að finna okkur sem hóp í allan vetur og ég held að við séum bara á mjög góðum stað.“


Hún hafði einnig orð á frammistöðu nýliðanna sem hún telur geta komið á óvart í sumar.


„Það hlýtur að vera ótrúlega erfitt að spá í þessa deild og eins og Grindavík/Njarðvík sýndu, þá fannst mér þær virkilega sterkar. Þær gætu komið fólki á óvart og ég held að þetta verði bara ansi jafnt.“


Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan

Slapp
banner
banner