„Þetta var erfitt, við vorum aðeins undir í sóknarleiknum en varnarleikurinn okkar var flottur og við virðum þetta stig," sagði Ray Anthony Jónsson, þjálfari Grindavíkur, eftir jafntefli liðsins gegn Vestra á útivelli í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar.
Grindavík komst yfir í leiknum en Vestri náði að svara og heimamenn voru ofan á í seinni hálfleik.
Grindavík komst yfir í leiknum en Vestri náði að svara og heimamenn voru ofan á í seinni hálfleik.
Lestu um leikinn: Vestri 1 - 1 Grindavík
„Við vorum aðeins á eftir í að klukka menn, en við vorum þéttir fyrir og það er erfitt að koma hérna og ekki hægt að ætla rúlla yfir einhvern leik hérna. Vestramenn eru þéttir og góðir."
„Við erum nokkuð brattir, erum með 18-20 leikmenn og erum nokkuð góðir. Ég vona að við náum að bæta einum leikmanni við fyrir gluggalok."
„Sumarið leggst vel í mig, við erum með unga leikmenn í bland við reynslumeiri menn. Þetta eru strákar sem eru hungraðir í að fá að spila leiki. Það er frábært að vinna með þeim," segir Ray sem væri ekkert á móti einum reynslumeiri leikmanni í liðið og það jafnvel á miðsvæðið miðað við svörin hans í viðtalinu sem má sjá í heild sinni í spilaranum efst.























