Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 22:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ísak og félagar færast nær efstu deild - Andri Fannar í bann
Mynd: Lyngby
Mynd: Kasimpasa
Ísak Snær Þorvaldsson gekk formlega til liðs við Lyngby í dag frá Rosenborg en hann var ekki með liðinu gegn Esbjerg í næst efstu deild í Danmörku í kvöld. Breki Baldursson var ekki með Esbjerg.

Lyngby vann leikinn 5-0 og er á toppnum með 54 stig og er með 12 stiga forystu á Esbjerg, sem er í 3. sæti, þegar 15 stig eru eftir í pottinum. Horsens og Hillerod eru 14 stigum á eftir og eiga leik til góða, tvö efstu liðin tryggja sér sæti í efstu deild.

Andri Fannar Baldursson var í byrjunarliði Kasimpasa sem steinlá 4-0 gegn Istanbul Basaksehir 4-0 í tyrknesku deildinni.

Kasimpasa er í 13. sæti með 31 stig, sex stigum frá fallsæti þegar þrjár umferðir eru eftir. Andri nældi sér í gult spjald í kvöld og verður í banni þegar liðið fær Kocaelispor í heimsókn í næstu umferð. Kocaelispor er fimm stigum á undan Kasimpasa í 11. sæti.

Adam Ingi Benediktsson var í rammanum þegar AB Kaupmannahöfn vann Naestved 3-0 í dönsku C-deildinni. AB er á toppnum með 56 stig, níu stigum á undan Naestved sem er í 3. sæti en sjö umferðir eru eftir.

Sigurður Bjartur Hallsson kom inn á undir lokin þegar AD Merida tapaði 2-0 gegn Arenas Getxo í spænsku C-deildinni. Merida er í 9. sæti með 48 stig. Helgi Fróði Ingason kom inn á í blálokin þegar Helmond tapaði 1-0 gegn Eindhoven FC í lokaumferðinni í næst efstu deild í Hollandi. Liðið endar í 18. sæti með 39 stig.

Valgeir Lunddal Friðriksson var ekki með Dusseldorf þegar liðið vann 3-1 gegn Dynamo Dresden í B-deildinni í Þýskalandi. Dusseldorf er í 14. sæti með 34 stig eftir 31 umferð.
Slapp
banner
banner