PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   lau 25. apríl 2026 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Gylfi er góður sölumaður"
Kvenaboltinn
Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur.
Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Natasha Anasi.
Natasha Anasi.
Mynd: Aðsend
Grindavík/Njarðvík er aðeins á sínu öðru ári eftir sameiningu en liðið mun spila í Bestu deild kvenna í sumar. Það er búið að leggja mikið í liðið og vilja sumir meina að það sé eitt dýrasta lið landsins.

Það hafa nokkrir leikmenn komið erlendis frá til félagsins en stærst var það líklega að Natasha Anasi gekk í raðir liðsins frá Val. Hún á að baki leiki með íslenska landsliðinu og kemur inn með mikla reynslu.

„Hún breytir landslaginu og þetta sýnir líka kannski hvað Gylfi (Tryggvason, þjálfari liðsins) er góður sölumaður. Ég hlustaði á þau saman í Niðurtalningunni þar sem Natasha sagði að hún þurfti ekki að taka ákvörðun eftir að hafa talað við Gylfa. Ef hún hefur trú á verkefninu, þá get ég lofað því að allar hinar hafa verkefninu sem er í gangi," sagði Magnús Haukur Harðarson þegar rætt var um Grindavík/Njarðvík í Uppbótartímanum.

„Dýrasta lið landsins? Hvað eiga þær að gera? Það eru ekki yngri flokkar í rauninni. RKVN eru mestmegnir stelpur frá Keflavík. Þær geta voða lítið byggt á uppöldum leikmönnum en þær eru samt til staðar þarna. Þær vilja spila fótbolta, sem maður fagnar," bætti Magnús Haukur við.

Að falla á eigið sverð eða brenna skipin
Gylfi Tryggvason, þjálfari liðsins, talaði um það í Niðurtalningunni að Grindavík/Njarðvík ætlaði sér að spila sinn fótbolta og reyna að sundurspila önnur lið í deildinni. Minnti það svolítið á Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfara karlaliðs KR, sem talaði um að brenna skipin og falla á eigin sverð í fyrra.

„Gylfi er góður sölumaður. Ég hef séð nokkra leiki hjá þeim á undirbúningstímabilinu. Ég hef séð þrjár mismunandi útgáfur af uppstillingu og áherslum, það er augljóslega verið að prófa og þróa sig áfram. Ef Grindavík/Njarðvík mætir í Kaplakrika eða Kópavogsvöll 'all guns blazing' þá elska ég það," sagði Magnús Haukur.

„Ég held að það snúist fyrst og fremst hvernig þetta byrjar fyrir þær hversu lengi þær halda í þessi gildi," sagði Arnar Páll Garðarsson í þættinum.

Grindavík/Njarðvík hefur leik í Bestu deild kvenna í dag á móti Val. Flautað verður til leiks klukkan 16:00 á Hlíðarenda.

Hægt er að horfa og hlusta á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan


Niðurtalningin - Nýliðar sem ætla að spila sambabolta
Slapp
banner
banner
banner
banner