PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   lau 25. apríl 2026 14:55
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin: Fyrsta mark Isak síðan í desember - Syngja nafn Woodman
Alexander Isak var að skora fyrir Liverpool
Alexander Isak var að skora fyrir Liverpool
Mynd: EPA
Alexander Isak og Andy Robertson eru búnir að koma Liverpool í 2-0 gegn Crystal Palace á Anfield.

Isak var að skora fyrsta mark sitt fyrir Liverpool síðan í desember, en hann fékk boltann inn á teignum og skaut boltanum í grasið og yfir Dean Henderson í markinu.

Sjáðu markið hjá Isak

Skotinn Andy Robertson var þá líklega að skoða kveðjumark sitt á Anfield. Það gerði hann eftir hraða skyndisókn stuttu eftir að Freddie Woodman varði frábærlega skalla Jean-Philippe Mateta.

Boltinn var færður hratt upp og var það Curtis Jones sem sendi Robertson í gegn sem setti boltann í stöng og inn.

Woodman, sem er að leysa af í markinu, hefur fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína í markinu. Hann er þriðji markvörður Liverpool, en er að spila annan deildarleik sinn fyrir félagið vegna meiðsla Alisson Becker og Giorgio Mamardashvili.

Stuðningsmenn hafa verið duglegir við að syngja nafn hans í leiknum, enda frábær fyrri hálfleikur hjá honum.

Sjáðu markið hjá Robertson
Slapp
banner
banner
banner