Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 14:34
Innkastið
Leikmaður með hátt skemmtanagildi
Ármann í baráttunni við Bjarka Hauksson.
Ármann í baráttunni við Bjarka Hauksson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ármann Ingi Finnbogason kom sterkur inn af bekk Víkinga í gær og lagði hann upp sigurmarkið á Óskar Borgþórsson með frábærri fyrirgjöf í 3-2 sigri Íslandsmeistarana á Stjörnunni.

Ármann er örvfættur hægri kantmaður sem er fæddur árið 2004 og er uppalinn hjá ÍA. Hann lék á láni hjá Grindavík í Lengjudeildinni síðasta sumar en var keyptur frá Skaganum í Víkina fyrr í vetur.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 -  2 Stjarnan

„Hann koma ótrúlega líflegur og skemmtilegur inn í þetta. Óhræddur og var að eiga hættulegar sendingar. Átti auðvitað þessa stoðsendingu á Óskar. Þetta er leikmaður með hátt skemmtanagildi,“ sagði Elvar Geir í Innkastinu í gær.

Valur Gunnarsson tók orðið; „Þeir máttu við þessari skiptingu, mér fannst þetta svolítið hugmyndasnautt hjá Víkingum fram á við. Hann kom með kraft inn í þetta.“

Hægt er að hlusta á Innkastið í spilaranum hér að neðan og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.


Innkastið - Mega skammast sín og gera það
Slapp
banner
banner