PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   lau 25. apríl 2026 13:23
Brynjar Ingi Erluson
England: Fagnaði nýjum samningi með sigurmarki
Ryan Sessegnon gerði sigurmark Fulham undir lok fyrri hálfleiks
Ryan Sessegnon gerði sigurmark Fulham undir lok fyrri hálfleiks
Mynd: EPA
Fulham 1 - 0 Aston Villa
1-0 Ryan Sessegnon ('43 )

Fulham vann dýrmætan 1-0 sigur á Aston Villa í 34. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Craven Cottage í dag. Ryan Sessegnon, sem skrifaði undir nýjan samning við Fulham á dögunum, var hetja liðsins.

Lundúnaliðið þurfti á sigrinum að halda til þess að halda vonum sínum á lífi um að komast í Evrópukeppni á næsta tímabili.

Það var fátt um fína drætti í fyrri hálfleiknum og vantaði aðeins upp á ákefðina, en eina markið kom undir lok hálfleiksins er Sessegnon hirti frákast í teignum og hamraði boltanum í hægra hornið.

Viðeigandi að hann hafi skorað markið aðeins nokkrum dögum eftir að hafa skrifað undir eins árs framlengingu.

Fulham kom boltanum aftur í netið eftir rúman klukkutíma leik er Timothy Castagne stangaði boltanum í netið eftir horn, en markið var tekið af þar sem Sander Berge hélt í Emi Martínez, markvörð Villa, í aðdragandanum.

Tammy Abraham kom sér í dauðafæri sjö mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma en brást bogalistin. Unai Emery, stjóri Villa, leyndi ekki vonbrigðum sínum á hliðarlínunni.

Slappt hjá Villa sem þurfti á sigrinum að halda í Meistaradeildarbaráttunni. Það var Fulham sem fagnaði í dag, en liðið er komið upp í 10. sæti með 48 stig, aðeins einu stigi frá Evrópusæti á meðan Villa er í 4. sæti með 58 stig.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
2 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 34 17 7 10 47 42 +5 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
10 Fulham 34 14 6 14 44 46 -2 48
11 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
12 Sunderland 34 12 10 12 36 45 -9 46
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 34 10 9 15 41 45 -4 39
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner
banner