Þrír leikmenn fæddir 2008 voru í byrjunarliði Þórs á móti Fram á fimmtudag í 3. umferð Bestu deildarinnar. Þeir Einar Freyr Halldórsosn og Ásbjörn Líndal Arnarsson höfðu byrjað fyrstu tvo leikina og Sverrir Páll Ingason kom svo inn í hægri bakvörðinn gegn Fram.
Allir hafa þeir spilað með yngri landsliðunum og eru hluti af sigursælum aldursflokki hjá Þór. 2. flokkur Þórs varð t.a.m. Íslandsmeistari í fyrra. Ásbjörn hafði spilað sem bakvörður í fyrstu leikjunum en er að upplagi miðvörður og leysti þá stöðu í leiknum.
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, var spurður út í þá eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Þór 1 - 0 Fram
„Hrikalega flottir, þetta eru strákar sem eiga fullt af landsleikjum, hafa spilað fullt af stórum leikjum. Við treystum þeim til að spila og þeir gerðu það ótrúlega vel. Við erum ógeðslega ánægðir með þá. En ég er ekki að fara standa hérna í viðtölum alltaf og segja hvað þeir ungir og flottir, þeir eru bara geggjaðir leikmenn og eru með hugarfarið, taugarnar og sjálfstraustið í að mæta í Bestu deildina og spila. Við vissum það, það var ekkert stress að vera byrja þessum gaurum," sagði Siggi eftir leikinn. Viðtalið má nálgast hér að neðan.
Næsti leikur Þórs verður gegn Breiðabliki á mánudag.