Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 22:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spánn: Vandræði Real Madrid halda áfram
Mynd: EPA
Betis 1 - 1 Real Madrid
0-1 Vinicius Junior ('17 )
1-1 Hector Bellerin ('90 )

Vonir Real Madrid um að næla í spænska deildartilinn fara minnkandi eftir dramatískt jafntefli gegn Betis í kvöld.

Real Madrid náði forystunni eftir rúmlega stundafjórðung. Federico Valverde átti skot af löngu færi sem Alvaro Velles, markvörður Betis, varði út í teiginn og Vinicius Junior náði boltanum og skoraði.

Antony var nálægt því að jafna metin undir lok fyrri hálfleiks en Andriy Lunin í marki Real varði frábærlega frá honum.

Þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma skoraði Hector Bellerin og bjargaði stigi fyrir Betis. Madrídingar voru mjög ósáttir þar sem þeir töldu að Antony hafi brotið á Ferland Mendy í aðdragandanum.

Real Madrid er í 2. sæti með 74 stig þegar fimm umferðir eru eftir. Liðið er átta stigum á eftir Barcelona sem á leik til góða gegn Getafe á morgun. Betis er í 5. sæti með 50 stig.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 32 27 1 4 85 30 +55 82
2 Real Madrid 33 23 5 5 68 31 +37 74
3 Villarreal 32 19 5 8 57 37 +20 62
4 Atletico Madrid 32 17 6 9 53 35 +18 57
5 Betis 33 12 14 7 49 41 +8 50
6 Celta 32 11 11 10 44 41 +3 44
7 Getafe 32 13 5 14 28 32 -4 44
8 Real Sociedad 32 11 9 12 49 49 0 42
9 Athletic 32 12 5 15 34 45 -11 41
10 Osasuna 32 10 9 13 37 39 -2 39
11 Vallecano 32 9 11 12 30 38 -8 38
12 Espanyol 32 10 8 14 37 49 -12 38
13 Girona 32 9 11 12 35 48 -13 38
14 Valencia 32 9 9 14 35 47 -12 36
15 Elche 32 8 11 13 42 49 -7 35
16 Mallorca 32 9 8 15 40 49 -9 35
17 Sevilla 32 9 7 16 39 53 -14 34
18 Alaves 32 8 9 15 36 48 -12 33
19 Levante 32 8 8 16 37 50 -13 32
20 Oviedo 32 6 10 16 25 49 -24 28
Slapp
banner
banner