Heimild: Man City
Nicolas Gonzalez var hetja Manchester City er hann skoraði sigurmark liðs síns gegn B-deildarliði Southampton í 2-1 sigri á Wembley í undanúrslitum Enska FA bikarsins í dag. Nico var í viðtali við opinbera vefsíðu Man City að leik loknum og lýsti tilfinningum sínum.
Þegar þrjár mínútur lifðu af venjulegum leiktíma á Wembley fann Nico pláss fyrir utan teiginn og skaut þrumuskoti í markhornið af um 25 metra færi og tryggði City sinn fjórða úrslitaleik um bikarinn í röð.
„Satt að segja man ég það ekki, kannski á síðasta tímabili, en það var ekki svona gott ef ég á að vera hreinskilinn,“ sagði Nico eftir leik þegar hann var spurður hvort hann hefði nokkurn tíma skorað flottara mark„
„Það er dásamlegt að skora í lokin. Það er langt síðan ég spilaði síðast. Og að vera hérna, á þessum magnaða leikvangi, með þessa stemningu, það er stórkostleg tilfinning.“
„Ég held að ég hafi fengið nokkur tækifæri til að skjóta af því að þeir vörðust svo djúpt. Við spiluðum mjög vel í seinni hálfleik og neyddum þá inn á eigin vallarhelming. Ég beið eftir tækifærinu og þegar ég fékk það, þá gaf ég allt í það, þrumaði bara í boltann og boltinn fór inn.“
„Það er draumur að vinna titla. Ég hef fengið tækifæri til að vinna þrjá titla á ævinni. En það yrði dásamlegt að vinna hérna aftur eins og gegn Arsenal [í deildarbikarnum]. Ég vona svo sannarlega að við fáum tækifæri til að vinna.“



