Fanney Inga og Thelma Karen Pálmadóttir eru einum leik frá því að vinna Evrópubikarinn í fyrsta sinn.
Landsliðskonurnar, sem eru báðar á mála hjá Häcken í Svíþjóð, voru í hópnum er liðið vann Hammarby, 1-0, í fyrri úrslitaleik Evrópubikarsins.
Fanney var í markinu á meðan Thelma kom inn af bekknum í síðari hálfleik. Guðrún Arnardóttir stóð vaktina í vörn Hammarby.
Seinni leikurinn er spilaður á heimavelli Häcken í Gautaborg og fer fram eftir viku. Sigurvegarinn verður Evrópubikarmeistari og jafnframt fyrsta liðið til að vinna þann titil.
Elísa Lana Sigurjónsdóttir var þá hetja Kristianstad í 1-0 sigri liðsins á Växjö FF í sænsku úrvalsdeildinni.
Hún gerði markið á 3. mínútu leiksins eftir stoðsendingu frá Lindu Líf Boama. Alexandra Jóhannsdóttir var einnig í byrjunarliði Kristianstad sem er í efsta sæti með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir.
Sigdís Eva Bárðardóttir kom inn af bekknum hjá Norrköping sem gerði 1-1 jafntefli við Maríu Catharinu Ólafsdóttur Gros og stöllur í Djurgården. María byrjaði hjá Djurgården sem er í 6. sæti með 4 stig en Norrköping er í 9. sæti með 2 stig.
Bergrós Ásgeirsdóttir byrjaði þá hjá Aarau sem tapaði fyrir Servette, 2-1, í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum í úrslitakeppni svissnesku úrvalsdeildarinnar.



