PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   lau 25. apríl 2026 18:39
Sverrir Örn Einarsson
Enski bikarinn: Þrjú mörk á síðasta korterinu er City tryggði sinn fjórða úrslitaleik í röð
Sigurmarki City fagnað
Sigurmarki City fagnað
Mynd: EPA
Manchester City varð í kvöld fyrsta liðið í sögunni til þess að tryggja sér sæti í fjórða úrslita FA bikarsins í röð er liðið bar 2-1 sigur á Southampton í dramatískum undanúrslitaleik á Wembley

Manchester City 2 - 1 Southampton
0-1 Finn Azaz ('79 )
1-1 Jeremy Doku ('83 )
2-1 Nicolas Gonzalez ('87 )

Man City stýrði leiknum lengst af gegn Championship liði Southampton en gekk erfiðlega að finna leiðina að marki.

Á 12. mínútu sendi Ross Stewart stungusendingu inn fyrir vörn City á Leo Scienza. Scienza slapp einn í gegnum vörnina, dró James Trafford markvörð út úr markinu og setti boltann af öryggi neðst í hægra hornið. Þrátt fyrir mikil fagnaðarlæti stuðningsmanna Southampton var aðstoðardómarinn fljótur að lyfta flagginu og sýndu endursýningar svo ekki var um villst að um réttan dóm var að ræða.

Á 36. mínútu átti Omar Marmoush hættulegt skot að nærstngu eftir sendingu frá Mateo Kovacic, en Daniel Peretz í marki Southampton gerði vel og varði í horn.

Staðan markalaus í hálfleik þrátt fyrir talsverða yfirburði City heilt yfir.

Eftir langa pressu frá City sótti Southampton hratt á 79 mínútu leiksins. Finn Azaz fékk boltann fyrir utan teig og átti hnitmiðað skot sem söng í netinu. Stuðningsmenn Southamton í draumalandi en var kippt mjög fljótt niður á jörðina aftur.

Á 82. mínútu prjónaði Jérémy Doku sig í gegnum vörnin Southampton og átti skot sem fór af varnarmanni Southampton og breytti um stefnu, Peretz í marki Southampton gat ekkert gert og boltinn lá í netinu og allt jafnt.

Það var svo á 87. mínútu sem Nico González gerði sigurmark Man City. Boltinn barst til hans eftir hornspyrnu og sýndi Nico mikla yfirvegun vel fyrir utan teig er hann smellti boltanum efst í markhornið á marki Southampton.

Leikmenn Southampton reyndu hvað þeir gátu og dældu boltanum fram á lokamínútum leiksins en allt kom fyrir ekki og verður það því Manchester City sem leikur til úrslita um FA bikarinn í ár og mætir þar annaðhvort Leeds eða Chelsea en þessi lið eigast við á morgun
Slapp
banner
banner
banner