„Mér fannst leikurinn ekki alveg vera eins og tölurnar gefa það skyn að við töpuðum 4-1. Mér fannst við ekki vera það samt, mér fannst við vera fínir,'' segir Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Gróttu, eftir 4-1 tap gegn HK í 1. umferð Lengjudeildarinnar.
Lestu um leikinn: HK 4 - 1 Grótta
„Við erum að fá á okkur mjög klaufaleg mörk. Þeir fá kannski sex tækifæri og skora fjögur mörk. Við erum helvítis klaufar að fá svona mörg mörk á okkur, en það er bara lærdómur sem við tökum af því,''
Það var áhugavert atvik þegar Kristófer Dan komast einn í gegn og Sigurður Gunnar, leikmaður HK, tæklar Kristófer niður. Elías dómari gaf Sigurði gult spjald fyrir brotið. Leikmenn og stuðningsfólk Grótta vildu svo sannarlega að Sigurður hefði átt að fá rautt fyrir tæklinguna.
„Já, hann bara metur þetta einhvern veginn öðruvísi en við. Mér fannst þetta vera einn í gegn, þá er það bara rautt. Hann vill meina eitthvað annað og þá er það bar þannig,''
„Við erum með margar sem eru að stíga sín fyrstu skref í meistarastigs fótbolta. Við erum meirisegja fimm menn sem hafa spilað í Lengjudeildinni, þannig við erum með ungt og óreynt lið. Það er gaman að taka þátt í þessu og líka fyrir þá að sjá muninn á því í þessari deild þá er þér refsað fyrir minnstu mistök,''
Spurt var Rúnar hver markmið Grótta eru fyrir þetta tímabil.
„Auðvitað reynum við eins og flest lið að vera topp fimm og fá auka leiki þarna í september. Við erum að koma frá 2. deild og auðvitað er markmiðið okkar líka bara að halda okkur í þessari deild,''
Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan























