PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   lau 25. apríl 2026 21:10
Sverrir Örn Einarsson
Ítalía: Sæti Parma tryggt
Nauðsynlegur sigur Roma
Donyell Malen
Donyell Malen
Mynd: EPA
Þrír leikir fóru fram í Ítölsku serie A í dag. Þar fór hæst viðureign Bologna og Roma þar sem gestirnir eiga í harðri baráttu um sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili.

Bologna 0 - 2 Roma
0-1 Donyell Malen ('7 )
0-2 Neil El Aynaoui ('45 )

Romar bara sigurorð af Bologna 2-0 . Hollenski framherjinn Donyell Malen braut ísinn strax á 7. mínútu með hnitmiðuðu skoti eftir undirbúning frá Neil El Aynaoui.

Aynaoui var aftur á ferðinni undir lok fyrri hálfleiks, en að þessu sinni skoraði hann sjálfur með glæsilegu viðstöðulausu skoti eftir sendingu frá Malen

Verona 0 - 0 Lecce

Þórir Jóhann Helgason var ónotaður varamaður hjá Lecce í markalausu jafntefli gegn Hellas Verona í kvöld.

Leikurinn var spennuþrunginn og virtist Hellas Verona hafa tryggt sér sigur seint í leiknum þegar Andrias Edmundsson skoraði, en eftir skoðun í VAR var markið dæmt af vegna rangstöðu. En Andrias þessi er bróðir Jóans Símúns sem leikur með KA á Akureyri.

Parma 1 - 0 Pisa
1-0 Nesta Elphege ('82 )

Þá vann Parma 1-0 sigur á liði Pisa þar sem Frakkinn Nesta Elphege gerði mark Parma. Þessi sigur var gríðar mikilvægur þar sem hann tryggði Parma stærðfræðilega áframhaldandi sæti í Serie A á næsta tímabili,


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 25 3 5 78 29 +49 78
2 Napoli 34 21 6 7 52 33 +19 69
3 Milan 33 19 9 5 48 27 +21 66
4 Juventus 33 18 9 6 57 29 +28 63
5 Roma 34 19 4 11 48 29 +19 61
6 Como 33 16 10 7 57 28 +29 58
7 Atalanta 33 14 12 7 45 29 +16 54
8 Bologna 34 14 6 14 42 41 +1 48
9 Lazio 33 12 11 10 34 30 +4 47
10 Sassuolo 33 13 6 14 41 44 -3 45
11 Udinese 33 12 7 14 38 43 -5 43
12 Parma 34 10 12 12 25 40 -15 42
13 Torino 33 11 7 15 37 54 -17 40
14 Genoa 33 10 9 14 40 46 -6 39
15 Fiorentina 33 8 12 13 38 45 -7 36
16 Cagliari 33 8 9 16 33 47 -14 33
17 Lecce 34 7 8 19 22 46 -24 29
18 Cremonese 34 6 10 18 26 51 -25 28
19 Verona 34 3 10 21 23 56 -33 19
20 Pisa 34 2 12 20 24 61 -37 18
Slapp
banner
banner