Tottenham Hotspur er enn í fallsæti þrátt fyrir að hafa unnið 1-0 sigur á Úlfunum í 34. umferð deildarinnar í Wolverhampton í dag. Liverpool er komið upp í fjórða sæti deildarinnar er liðið vann Crystal Palace, 3-1, á Anfield.
Það hefur verið ágætis taktur í Liverpool-liðinu í síðustu leikjum og stefnir liðið hraðbyr í átt að Meistaradeildinni.
Arne Slot neyddist til þess að gera markmannsskiptingu, en Giorgio Mamardashvili og Alisson Becker eru báðir meiddir og kom hinn 29 ára gamli Freddie Woodman inn í liðið.
Sá stóð sig frábærlega gegn Crystal Palace og átti hann margar góðar vörslur.
Liverpool komst á bragðið í leiknum á 35. mínútu er Alexander Isak fékk sendingu frá Alexis Mac Allister, skaut boltanum í grasið og í hægra hornið. Fyrsta mark hans síðan í desember.
Fimm mínútum síðar voru Palace-menn nálægt því að jafna metin er Jean-Philippe Mateta átti skalla sem Woodman varði frábærlega og í kjölfarið keyrðu heimamenn upp í skyndisókn. Curtis Jones sendi Andy Robertson í gegn sem klíndi boltanum út við stöng og í netið.
Góð forysta hjá Liverpool í hálfleik, en liðið varð fyrir áfalli snemma í þeim síðari er Mohamed Salah fór meiddur af velli. Vonandi fyrir Liverpool-menn að þetta hafi ekki verið kveðjuleikur hans á tímabilinu.
Tólf mínútum síðar minnkaði Daniel Munoz muninn fyrir Palace-menn og fór aðeins um heimamenn eftir markið.
Seint í uppbótartíma tókst þýska landsliðsmanninum Florian Wirtz að róa taugarnar með þriðja markinu. Joe Gomez tók langt inn kast á Mac Allister, sem lagði boltann út á Wirtz sem skoraði með föstu skoti í vinstra hornið.
Þriðji deildarsigur Liverpool í röð staðreynd og liðið komið upp í 4. sæti deildarinnar með 58 stig en Palace í 13. sæti með 43 stig þegar fjórar umferðir eru eftir.
West Ham marði 2-1 sigur á Everton í Lundúnum. Tomas Soucek kom Hömrunum yfir á 52. mínútu en á lokamínútunum jafnaði Kiernan Dewsbury-Hall metin.
Á þriðju mínútu í uppbótartíma skoraði Callum WIlson dýrmætt sigurmark West Ham sem hélt liðinu áfram fyrir ofan fallsæti með 36 stig.
Tottenham vann sinn fyrsta leik undir Roberto De Zerbi og fyrsta sigurinn á árinu er það lagði Wolves að velli, 1-0, á Molineux.
Portúgalinn Joao Palhinha gerði sigurmark Tottenham á 82. mínútu er hann teygði sig í skottilraun Richarlison og stýrði boltanum í netið.
Ótrúlega mikilvæg þrjú stig hjá Tottenham, en því miður fyrir liðið þá er það enn í fallsæti, tveimur stigum frá öruggu sæti fyrir síðustu fjórar umferðirnar.
Liverpool 3 - 1 Crystal Palace
1-0 Alexander Isak ('35 )
2-0 Andrew Robertson ('40 )
2-1 Daniel Munoz ('71 )
3-1 Florian Wirtz ('90 )
West Ham 2 - 1 Everton
1-0 Tomas Soucek ('52 )
1-1 Kiernan Dewsbury-Hall ('88 )
2-1 Callum Wilson ('90 )
Wolves 0 - 1 Tottenham
0-1 Joao Palhinha ('82 )
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 34 | 22 | 7 | 5 | 64 | 26 | +38 | 73 |
| 2 | Man City | 33 | 21 | 7 | 5 | 66 | 29 | +37 | 70 |
| 3 | Man Utd | 33 | 16 | 10 | 7 | 58 | 45 | +13 | 58 |
| 4 | Liverpool | 34 | 17 | 7 | 10 | 57 | 44 | +13 | 58 |
| 5 | Aston Villa | 34 | 17 | 7 | 10 | 47 | 42 | +5 | 58 |
| 6 | Brighton | 34 | 13 | 11 | 10 | 48 | 39 | +9 | 50 |
| 7 | Bournemouth | 34 | 11 | 16 | 7 | 52 | 52 | 0 | 49 |
| 8 | Chelsea | 34 | 13 | 9 | 12 | 53 | 45 | +8 | 48 |
| 9 | Brentford | 33 | 13 | 9 | 11 | 48 | 44 | +4 | 48 |
| 10 | Fulham | 34 | 14 | 6 | 14 | 44 | 46 | -2 | 48 |
| 11 | Everton | 34 | 13 | 8 | 13 | 41 | 41 | 0 | 47 |
| 12 | Sunderland | 34 | 12 | 10 | 12 | 36 | 45 | -9 | 46 |
| 13 | Crystal Palace | 33 | 11 | 10 | 12 | 36 | 39 | -3 | 43 |
| 14 | Newcastle | 34 | 12 | 6 | 16 | 46 | 50 | -4 | 42 |
| 15 | Leeds | 34 | 9 | 13 | 12 | 44 | 51 | -7 | 40 |
| 16 | Nott. Forest | 34 | 10 | 9 | 15 | 41 | 45 | -4 | 39 |
| 17 | West Ham | 34 | 9 | 9 | 16 | 42 | 58 | -16 | 36 |
| 18 | Tottenham | 34 | 8 | 10 | 16 | 43 | 53 | -10 | 34 |
| 19 | Burnley | 34 | 4 | 8 | 22 | 34 | 68 | -34 | 20 |
| 20 | Wolves | 34 | 3 | 8 | 23 | 24 | 62 | -38 | 17 |




