„Vonsvikinn, við vildum vinna í dag og við gátum það ekki og því er ég augljóslega vonsvikinn," sagði Daniel Badu, þjálfari Vestra, eftir jafntefli við Grindavík á heimavelli í fyrstu umferð Lengudeildarinnar.
Vestri spilaði betur í seinni hálfleik en þeim fyrri og Badu er svekktur að hans menn nýttu ekki færin sín. Næsti leikur verður gegn Fylki á útivelli eftir viku.
Vestri spilaði betur í seinni hálfleik en þeim fyrri og Badu er svekktur að hans menn nýttu ekki færin sín. Næsti leikur verður gegn Fylki á útivelli eftir viku.
Lestu um leikinn: Vestri 1 - 1 Grindavík
„Ef við gerum góðu hlutina sem við gerðum í dag og ekki þá slæmu, þá verð ég glaður. Ég vil skoða það sem við gerðum ekki nógu vel, höfum viku til að æfa og vonandi spilum við betur í næsta leik."
„Standið okkar verður bara betra, það styttist í Gumma, Fatai er auðvitað enn frá en hópurinn lítur betur út núna en fyrir nokkrum vikum."
„Ég er ánægður með hópinn, svo ef við fáum engan inn fyrir gluggalok þá er það ekki vandamál, en ef við getum fengið inn góðan liðsstyrk þá væri það gott," sagði Badu um mögulega styrkingu fyrir gluggalok.
Hægt er að sjá og hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum efst.























