PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
Guðni Eiríks: Það er ekki tilfinningin sem ég fæ
Rúnar Páll: Við erum helvítis klaufar
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
Alli Jói: Hélt að vorbragur væri dautt hugtak í íslenskum fótbolta
Rændar vítaspyrnu - „Bara frábær markvarsla hjá útileikmanni Vals“
Brynjar Björn: Við fáum það í bakið, ekkert flóknara en það
„Þetta er náttúrulega gífurlega ungt lið“
„Hlýtur að vera ótrúlega erfitt að spá í þessa deild“
Bjarki Baldvins: Held að samkvæmt ströngustu reglum megum við ekki vera þjálfarar
Damir: Vonandi springur hann út hjá okkur
Ray virðir stigið: Vona að við getum bætt við einum reynslumeiri manni
Badu svekktur: Væri gott að fá góðan liðsstyrk
Anton Ingi: Töpuðum í raun fyrir sjálfum okkur
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
Maggi: Versta varnarframmistaða sem ég hef séð í mörg ár
Freyja Stefáns: Gott að vera strax búin að stimpla sig inn
Einar Guðna: Væri örugglega vælandi yfir þessu ef við hefðum ekki unnið
   lau 25. apríl 2026 20:05
Snæbjört Pálsdóttir
Rændar vítaspyrnu - „Bara frábær markvarsla hjá útileikmanni Vals“
Kvenaboltinn
Gylfi Tryggvason þjálfari nýliðanna Grindavík/Njarðvík vildi fá víti undir lok leik.
Gylfi Tryggvason þjálfari nýliðanna Grindavík/Njarðvík vildi fá víti undir lok leik.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvík, var ánægður með frammistöðu síns liðs þrátt fyrir 2-1 tap gegn Val á Hlíðarenda.

„Ég veit ekkert hvað ég á að segja, þetta var rosalega steiktur leikur.“


Lestu um leikinn: Valur 2 -  1 Grindavík/Njarðvík

Þrátt fyrir tapið var hann afar sáttur með spilamennsku nýliðanna stóran hluta leiksins.

„Mér fannst við bara frábærar í dag, frá 10. til 90. Mínútu. Ég er eiginlega í smá sjokki hvað frammistaðan í dag var rosalega góð. Fyrstu tíu mínúturnar þurftum við aðeins að vinna okkur inn í leikinn.“

„Mér fannst við bara spila geggjaðan bolta í 80 mínútur, þannig ég er raunverulega bara mjög ánægður. 90% af tilfinningum mínum eru bara jákvæðar.“

Hann telur liðið hafa sýnt að það eigi fullt erindi í deildina.

„Ef þetta er það sem koma skal þá lýst mér bara hrikalega vel á sumarið.“

Tvö stór atvik komu undir lok leiks og taldi Gylfi sitt lið hafa átt að fá víti.

„Það sem augu mín sáu í mómentinu var að þetta er bara pjúra vítaspyrna, því boltinn er á leiðinni bara í bláhornið og ég er með frábæran vinkil hérna, bara sama vinkil og fjórði dómarinn. Bara pjúra hendi, bara frábær markvarsla hjá útileikmanni Vals.“

„Þar erum við rændar vítaspyrnu og vítaspyrnur enda oft með marki þannig þá erum við allt í einu með jafntefli.“

Einnig fékk leikmaður liðsins, Maci Nicole Teater, rautt spjald undir lok leiks, sem þýðir að hún missir af næstu tveimur leikjum ef litið er til hártogs dóma á síðasta tímabili.

„Það er náttúrlega ótrúlega dýrkeypt þegar það eru 50 sekúndur eftir.“

„Ég veit ekki af hverju leikmaður ætti að vera að toga í hár á miðjumanni þegar við erum að reyna að ná boltanum og 50 sekúndur eftir. Ég þarf að sjá það aftur, ég sá það ekki.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner
banner