PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   lau 25. apríl 2026 20:35
Sverrir Örn Einarsson
Heimild: Sky Sports 
Arteta ánægður með viðbrögð leikmanna
Mynd: EPA
Mikel Arteta hefur hvatt leikmenn sína til að grípa frumkvæðið í titilbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni og klára verkið eftir að hafa nýtt tímann til að hlaða batteríin og hugsa hlutina í kjölfar tapsins gegn Manchester City.

„Það er mikilvægt að finna fyrir sjálfstrausti, trausti og skýrleika um það sem við viljum sýna á vellinum,“ sagði hann í samtali við Sky Sports. „En nú er augnablikið fyrir okkur öll að taka eignarhald. Við getum talað allan daginn, en við þurfum að fara út á þennan völl og við þurfum að klára verkið.“

Arteta hefur verið ánægður með viðbrögð leikmanna eftir tapið á Etihad-leikvanginum síðastliðinn sunnudag:
„Mér líkaði strax viðbrögðin í búningsklefanum því ég fann að þeir voru jafnvel enn sannfærðari en fyrir leikinn um að við ætlum að gera þetta,“ sagði hann. „Við nýttum vikuna til að hlaða batteríin og hressa okkur við. Við ræddum um hvers konar lið við viljum vera.“

Arteta telur að það verði hans erfiðasta verkefni á lokasprettinum að velja byrjunarliðið, sérstaklega þar sem leikmenn á borð við Bukayo Saka og Riccardo Calafiori eru að snúa aftur úr meiðslum.
„Það er einn stærsti höfuðverkur hvers knattspyrnustjóra að hitta á rétt byrjunarlið og hvernig við ætlum að klára leikinn. Við erum með mjög fjölbreytta leikmenn sem er af hinu góða,“ sagði Arteta.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 22 7 5 64 26 +38 73
2 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Liverpool 34 17 7 10 57 44 +13 58
5 Aston Villa 34 17 7 10 47 42 +5 58
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
10 Fulham 34 14 6 14 44 46 -2 48
11 Everton 34 13 8 13 41 41 0 47
12 Sunderland 34 12 10 12 36 45 -9 46
13 Crystal Palace 33 11 10 12 36 39 -3 43
14 Newcastle 34 12 6 16 46 50 -4 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 34 10 9 15 41 45 -4 39
17 West Ham 34 9 9 16 42 58 -16 36
18 Tottenham 34 8 10 16 43 53 -10 34
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 34 3 8 23 24 62 -38 17
Slapp
banner
banner
banner