Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 22:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þýskaland: Leipzig styrkti stöðu sína í Meistaradeildarbaráttunni
Romulo fagnar marki sínu með Yan Diomande
Romulo fagnar marki sínu með Yan Diomande
Mynd: EPA
RB Leipzig 3 - 1 Union Berlin
1-0 Max Finkgrafe ('22 )
2-0 Romulo ('25 )
3-0 Ridle Baku ('63 )
3-1 Danilho Doekhi ('78 )

Leipzig er í góðri stöðu í Meistaradeildarbaráttunni eftir sigur á Union Berlin í kvöld.

Max Finkgrafe kom Leipzig yfir með góðu skoti fyrir utan teiginn eftir að varnarmenn Union áttu í vandræðum með að koma boltanum frá. Stuttu síðar fóru þeir síðan leið eitt þegar Romulo skoraði eftir langa sendingu fram völlinn frá Maarten Vandevoordt, markverði Leipzig.

Ridle Baku innsiglaði síðan sigurinn áður en Danilho Doekhi náði að klóra í bakkann fyrir Union.

Marie-Louise Eta var fyrsta konan til að vera ráðin aðalþjálfari karlaliðs í fimm stærstu deildum Evrópu þegar hún tók við Union til bráðabirgða út tímabilið fyrr í þessum mánuði. Henni hefur ekki tekist að rífa liðið upp til þessa en liðið hefur tapað báðum leikjunum undir hennar stjórn.

Leipzig er í 3. sæti með 62 stig, átta stigum á undan Hoffenheim sem er í 5. sæti. Leipzig á þrjá leiki eftir en Hoffenheim fjóra. Union er íi 11. sæti með 32 stig.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 30 25 4 1 109 29 +80 79
2 Dortmund 30 19 7 4 61 31 +30 64
3 RB Leipzig 31 19 5 7 62 38 +24 62
4 Stuttgart 30 17 5 8 62 42 +20 56
5 Hoffenheim 30 16 6 8 59 44 +15 54
6 Leverkusen 30 15 7 8 60 41 +19 52
7 Freiburg 30 12 7 11 44 48 -4 43
8 Frankfurt 30 11 9 10 55 57 -2 42
9 Augsburg 30 10 6 14 38 54 -16 36
10 Mainz 30 8 10 12 36 45 -9 34
11 Union Berlin 31 8 8 15 35 55 -20 32
12 Köln 30 7 10 13 44 51 -7 31
13 Gladbach 30 7 10 13 36 50 -14 31
14 Hamburger 30 7 10 13 33 48 -15 31
15 Werder 30 8 7 15 35 53 -18 31
16 St. Pauli 30 6 8 16 26 51 -25 26
17 Wolfsburg 30 6 6 18 41 66 -25 24
18 Heidenheim 30 4 7 19 33 66 -33 19
Slapp
banner
banner