Haukar tryggðu sér í dag sigur í B-deild Lengjubikarsins með sigri á liði Víkings frá Ólafsvík eftir vítaspyrnukeppni.
Víkingur Ó. 0 - 0 Haukar (2-4 e-vsp)
0-1 Daði Snær Ingason
0-2 Máni Mar Steinbjörnsson
1-2 Benjamín Mehic
1-3 Ævar Daði Segatta
2-3 Daði Kárason
2-4 Gabríel Aron Sævarsson
Leikurinn fór fram við krefjandi aðstæður á Ólafsvík þar sem talsverður vindur hafði mikil áhrif á framvindu leiksins.
Vindurinn var beint á völlinn og ltókst hvorugu liðinu að nýta sér að leika undan vindinum í sitthvorum hálfleiknum og því var gripið til vítaspyrnukeppni.
Þar reyndust Haukar sterkari undir stjórn spyrnusérfræðingsins Guðjóns Pétur Lýðssonar og tryggðu sér Lengjubikarinn með því að skora úr fjórum spyrnum gegn tveimur Ólafsvíkinga.




