Breiðablik gerði markalaust jafntefli við Keflavík í bragðdaufum leik síðastliðinn miðvikudag. Blikar eru nú með fimm stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar.
Bitleysi Blika hefur vakið athygli en liðið hefur einungis skorað tvö mörk á tímabilinu, annað þeirra úr umdeildri vítaspyrnu. Liðið hefur einungis átt fjögur skot á mark andstæðingsins í fyrstu þremur leikjunum.
„Ég trúi því ekki að Blikar ætli ekki að fara í gegnum þennan glugga án þess að sækja mann fram á við. Hvort sem það er framherji eða sóknarmaður sem getur skorað. Það er ekkert annað en metnaðarleysi,“ sagði sparkspekingurinn Albert Brynjar Ingason í Stúkunni í gær.
Breiðablik hefur verið orðað við Hólmbert Aron Friðjónsson og Árna Vilhjálmsson en glugginn lokar þann 29. apríl, næstkomandi miðvikudag, og opnar á ný þann 16. júlí.