Gianluca Prestianni leikmaður Benfica hefur fengið sex leikja bann frá UEFA fyrir hommafóbísk ummæli sem beindust að Vinicius Jr leikmanni Real Madrid.
Liðin mættust í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar í febrúar og var leikurinn stöðvaður í tíu mínútur eftir að Vinicius sakaði Prestianni um að vera með kynþáttaníð í sinn garð.
Liðin mættust í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar í febrúar og var leikurinn stöðvaður í tíu mínútur eftir að Vinicius sakaði Prestianni um að vera með kynþáttaníð í sinn garð.
Prestianni, sem er 20 ára, neitaði því að hafa verið með kynþáttafordóma en í ljós hefur komið að hann hafi í raun verið með hommafóbísk ummæli.
Prestianni fær samtals sex leikja bann en þrír af þeim eru skilorðsbundnir í tvö ár.




