„Þetta var svona ekta fyrsti leikur. Vorum svolítið svona, taugarnar aðeins í byrjun, mér fannst við á köflum spila vel. Fyrri hálfleikur vorum við pínu óþolinmóðir, voru opnanir til staðar fyrir okkur, við töluðum um það í hálfleik og seinni hálfleikur var fínn. Fínt að skora þrjú mörk og halda hreinu, bara fín byrjun og við þurfum að halda áfram" sagði Heimir Guðjónsson þjálfari Fylkis, eftir 3-0 sigur á heimavelli gegn nýliðum Ægir.
Lestu um leikinn: Fylkir 3 - 0 Ægir
Það má segja að þetta var leikur tveggja hálfleika?
„Já, hann var svolítið svoleiðis. Við vissum það, það er fyrsta lagi Ægir er með gott lið og vel þjálfað, svo eru þeir með gott skipulag, við vissum að við þurftum ákveðna þolinmæði. Svo er það líka, er oft Óli Jó sagði það allaveganna alltaf, erfitt að byrja á nýliðum. Þeir höfðu engu að tapa, skildu allt eftir á vellinum, úr var bara hörku leikur."
Er þá ekki alltaf best að klára nýliðanna í fyrsta leik?
„Jú. Það vara bara fínt og bara fínt að byrja á sigri og fínt að þetta sé komið að stað, bara geggjað. Stuðningsmenn frábærir í kvöld, góð mæting og góð stemming. Það er alltaf þannig með stuðning í fótbolta, það byrjar allt á vellinum. Við þurfum að sýna frammistöðu svo fólk mæti á völlinn og hafi gaman af þessu, það tókst vel í kvöld.
Hvað er það sem þið gerið vel í seinni hálfleik sem gekk illa í fyrri hálfleik?
„Við vorum svolítið þegar við vorum komnir út á vængina, vorum við svolítið að taka boltann inn í staðinn að fara út af við, fá fyrirgjafir. Við löguðum það i seinni hálfleik enda komu fyrstu tvö mörkin eftir fyrirgjafir á hægri og við náðum að laga það í seinni."
Guðmundur Tyrfings var ekki í hóp í dag, hvað er staðan á honum?
„Hann tognaði eitthvað aðeins, hann var tæpur fyrir þennan leik og mótið er að byrja. Ég reikna með því að hann verði klár. Það eru átta dagar í næsta leik, hann ætti að vera klár þá."
Hvernig finnst þér nýju mennirnir koma inn í liðið (Hlynur Sævar, Kára Sigfús og Guðfinn Leó)?
„Mér finnst leikmennirnir sem við höfum fengið, Hlynur var góður í dag, Kári var góður í dag, Guffi var góður í dag. Eins og ég talaði um við misstum marga leikmenn en höfum fengið góða leikmenn í staðinn sem hjálpuðu okkur."
Svo er það ungstirnið Magnús Daði Ottesen, hvernig er hann?
„Hann er bara frábær. Allir vegir færir, öflugur center og hlustar, duglegur að æfa. Hann á bara framtíðina fyrir sér. Hann er búin að vera að koma inn á í þessum leikjum hjá okkur og staðið sig vel. Hann gerði það þegar hann kom inn á í kvöld."
Næsti leikur gegn Vestra á heimavelli, hvernig leik ertu að búast við?
„Ég á eftir að skoða, það er æfing í fyrramálið svo frí á sunnudaginn, svo á mánudaginn förum við að skoða Vestra og ég meina Vestri er með góðan mannskap og gott lið. Við þurfum að bara eins og alltaf að vanda til verka."























