Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Við erum einmitt sammála þessu"
Lengjudeildin
Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar.
Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur fagnar marki á undirbúningstímabilinu.
Þróttur fagnar marki á undirbúningstímabilinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Venni er að fara inn í sitt þriðja tímabil sem þjálfari Þróttar.
Venni er að fara inn í sitt þriðja tímabil sem þjálfari Þróttar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þrótturum er spáð efsta sæti.
Þrótturum er spáð efsta sæti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Tímabilið leggst ljómandi vel í okkur, við eins og aðrir erum búnir að bíða lengi eftir þessu og erum spenntir að hefja baráttuna," segir Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, í samtali við Fótbolta.net um komandi tímabil.

Þrótturum er spáð efsta sæti af fyrirliðum og þjálfurum deildarinnar. „Að vera spáð efsta sætinu kemur mér á óvart, en skemmtilega á óvart þó. Það gleður mig að utanaðkomandi aðilum þyki okkar lið gott og spái liðinu góðu gengi. Við erum einmitt sammála þessu svo að þessi spá staðfestir og styrkir trúnna á okkur sjálfa."

Hungur til að stíga lokaskrefið
Þróttur tapaði í undanúrslitum umspilsins á síðasta tímabili. Hvernig horfir Venni til baka á það?

„Með hlýjum hug. Við tókum stórt skref í okkar ferli og náðum nánast alla leið. Við vorum með yngsta lið deildarinnar og síðasta sumar gaf peyjunum dýrmæta reynslu og hungur til að stíga lokaskrefið í þessum fasa félagsins í sumar."

Hann segir að það hafi gengið vel á undirbúningstímabilinu.

„Heilt yfir bara fínt. Leikmenn æft mjög vel og meiðsli í lágmarki. Úrslit leikja hafa almennt verið fín og frammistöðurnar jafnan góðar. Mætum klárir í mótið."

Sáttur með hópinn?

„Okkar aðaláhersla síðustu árin hefur verið að halda hópnum þéttum og tengja vel á milli tímabila með því að halda fast í okkar kjarna og reyna að krydda hann með nýjum og ferskum brögðum. Við þurftum að vísu að horfa á eftir Kára Kri, sem var einn af lykilmönnum liðsins, sem og Viktori Andra og Liam, okkar markahæstu manna á síðasta tímabili. Ég tel þó að við höfum fyllt þau skörð mjög vel með mönnum eins og Sigga Lár, Adami Árna og Tryggva Snæ."

Klikkuð deild og boð í lundaveislu
Það má búast við jafnri og spennandi Lengjudeild í sumar.

„Það er alltaf erfitt að sjá fyrir sér hvað gerist í þessari klikkuðu deild. Eins og þetta lítur út núna sýnist mér að það séu einhver 7-8 lið sem telja sig eiga raunhæfan möguleika á að komast upp, og nokkur lið virðast reiðubúin að leggja ansi mikið undir til að ná því markmiði. Ég reikna því með hnífjafnri deild þar sem allt getur gerst."

„Markmiðið er alltaf að bæta sig á milli tímabila. Í fyrra vorum við hársbreidd frá því að ná alla leið. Við vitum hins vegar, eins og þessi spá staðfestir, að andstæðingar okkar munu mæta okkur með öðru hugarfari í ár heldur en fyrri ár, svo að ég reikna með að við þurfum að spila töluvert betur heldur en í fyrra. Markmið okkar er því að hækka ránna, svífa yfir allar hindranir og spila í efstu deild að ári," segir Sigurvin og bætti við að lokum:

„Þróttarar og Laugardalsbúar, ég vil fá ykkur öll á völlinn á alla leiki. Stemmning og stuð á vellinum getur verið úrslitaatriðið sem ýtir okkur yfir endalínuna. Ég mun persónulega verðlauna þau sem mæta á alla leikina okkar með boði í lundaveislu í haust. Það verður þess virði, hvernig sem leikirnir fara."
Slapp
banner
banner