Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 20:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Nottingham Forest rúllaði yfir Sunderland í fyrri hálfleik
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Sunderland 0 - 5 Nott. Forest
0-1 Trai Hume ('17 , sjálfsmark)
0-2 Chris Wood ('31 )
0-3 Morgan Gibbs-White ('34 )
0-4 Igor Jesus ('37 )
0-5 Elliot Anderson ('90 )

Nottingham Forest heimsótti Sunderland í fyrsta leik 34. umferðar úrvalsdeildarinnar í kvöld. Með sigri yrði Forest átta stigum frá fallsæti.

Þetta byrjaði vel fyrir gestina en liðið komst yfir eftir stundafjórðung þegar Igor Jesus átti skalla í Trai Hume og í netið.

Forest var í miklum gír en Chris Wood kom liðinu í tveggja marka forystu. Morgan Gibbs-White bætti þriðja markinu við og Igor Jesus gerði fjórða markið en þessu þrjú mörk komu á sex mínútna kafla í fyrri hálfleik.

Dan Ballard skoraði fyrir Sunderland eftir hornspyrnu eftir klukkutíma leik en markið var dæmt af þar sem Nordi Mukiele braut á Matz Sels.

Sunderland var með öll völd á vellinum í seinni hálfleik en Eliott Anderson innsiglaði sigur Forest í blálokin. Forest er í 16. sæti með 39 stig, átta stigum á undan Tottenham sem mætir Úlfunum á morgun. Sunderland er í 11. sæti með 46 stig.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
2 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 34 12 10 12 36 45 -9 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 34 10 9 15 41 45 -4 39
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner
banner