„Tímabilið leggst vel í okkur í Árbænum og erum fullir tilhlökkunar," segir Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, í samtali við Fótbolta.net fyrir komandi keppnistímabil.
Fylki er spáð öðru sæti deildarinnar fyrirliðum og þjálfurum. „Miðað við að liðið var í fallbaráttu í fyrra þá kemur þessi spá á óvart en að sjálfsögðu viljum við gera betur en á seinustu leiktíð."
Fylki er spáð öðru sæti deildarinnar fyrirliðum og þjálfurum. „Miðað við að liðið var í fallbaráttu í fyrra þá kemur þessi spá á óvart en að sjálfsögðu viljum við gera betur en á seinustu leiktíð."
Byrjaði brösulega
Heimir, sem er einn sigursælasti þjálfari landsins, tók við Fylki í vetur og hann er mjög glaður í Árbænum. „Það hefur verið frábært að mæta í Árbæinn." En hvernig hefur veturinn verið?
„Þetta byrjaði brösulega en með tímanum höfum við séð framfarir á liðinu."
„Við höfum misst 6-7 leikmenn sem voru lykilmenn í fyrra, en fengið góða leikmenn í staðinn. Staðan á hópnum er góð," segir Heimir.
Bara næsti leikur
Hvernig sérð þú fyrir þér að deildin spilist í sumar?
„Öll lið spila 22 leiki og svo verður talið upp úr hattinum í lokin," segir Heimir léttur en hann er ekkert að flækja hlutina þegar kemur að markmiðum.
„Það er bara næsti leikur."
Að lokum sagði Heimir: „Árbærinn hefur í gegnum árin staðið vel við bakið á Fylki og stuðningurinn við liðið hefur verið frábær í þessum undirbúningsleikjum í vetur. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að gera Árbæinn stoltan af liðinu sínu. Sjáumst hress á Tekkvellinum."



