Sunderland fær Nottingham Forest í heimsókn í fyrsta leik helgarinnar. Forest er með 36 stig og getur komist fjórum stigum frá fallsæti. Sunderland er með 46 stig í 11. sæti og getur blandað sér í Evrópubaráttuna.
Dan Ballard snýr aftur í lið byrjunarlið Sunderland eftir meiðsli, hann kemur inn fyrir Luke O'Nien. Trai Hume, sem skoraði í tapi gegn Aston Villa í síðustu umferð, kemur inn fyrir Reinildo Mandava.
Chris Wood og Igor Jesus eru saman frammi hjá Forest. Jesus kemur inn fyrir Dialen Bakwa og Jai Cunha kemur inn fyrir Murillo frá 4-1 sigri á Burnley.
Sunderland: Roefs, Mukiele, Ballard, Alderete, Hume, Xhaka, Sadiki, Diarra, Le Fee, Rigg, Brobbey
Nottingham Forest: Sels, Aina, Cunha, Milenkovic, Williams, Anderson, Sangare, Hutchinson, Gibbs-White, Jesus, Wood




