PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   lau 25. apríl 2026 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Conte vonsvikinn: Hef ekki talað við Lukaku
Mynd: EPA
Andrúmsloftið í kringum Romelu Lukaku hjá Napoli er orðið ansi súrt en hann sneri aftur til félagsins í vikunni eftir að hafa skrópað á æfingar í síðasta mánuði.

Lukaku hefur verið að kljást við meiðsli og hann ákvað að vera eftir í Belgíu í síðasta landsleikjahléi til að æfa einn. Það fór illa í stjórnarmenn Napoli og hann var sektaður.

Napoli vann öruggan 4-0 sigur á Cremonese í gær og situr í 2. sæti deildarinnar sem er fagnaðarefni en Antonio Conte, stjóri liðsins, var ekki glaður þegar hann ræddi um Lukaku eftir leikinn.

„Ég hef ekki fengið tækifæri til að tala við hann. Ég veit að stjórnarmaður hefur talað við hann, hann kom á æfingasvæðið, skrifstofan mín er þarna en enginn bankaði upp á og það olli mér miklum vonbrigðum því ég bjóst við einhverskonar skilaboðum," sagði Conte.

„Þjálfarinn reynir að skilja alla en enginn reynir að skilja þjálfarann í svona aðstæðum."


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner
banner