Cesc Fabregas, þjálfari Como á Ítalíu, segist vel geta hugsað sér að þjálfa í ensku úrvalsdeildinni í framtíðinni, en það er þó ekkert sem hann er að velta fyrir sér í augnablikinu.
Spánverjinn hefur náð frábærum árangri með Como síðan hann tók við árið 2023.
Hann kom liðinu upp í Seríu A ári síðar. Markmiðið var að halda liðinu uppi en hann gerði gott betur en það með því að hafna í 10. sæti deildarinnar.
Á þessu tímabili hefur liðið verið að berjast í efri hlutanum og á enn möguleika á að komast í Meistaradeildina. Eðlilega hafa vaknað spurningar um framtíð Fabregas, en hans gamla félag Chelsea er sagt áhugasamt um að fá hann í sumar.
Fabregas er ekkert að flýta sér að taka skrefið, en að á endanum mun hann halda til Englands.
„Enska úrvalsdeildin er sú besta í heimi. Ég hef alltaf verið mjög skýr með það. Mér fannst það þegar ég var leikmaður og nú sem þjálfari og stuðningsmaður,“ sagði Fabregas við Daily Telegraph.
„En Mourinho sagði mér einn daginn þegar ég var hjá Chelsea 'Ég á enn 30 ár eftir af ferlinum'. Þannig ég gæti verið hér hjá Como í tíu ár og farið síðan í ensku úrvalsdeildina eftir tólf eða fimmtán ár. Fótbolti er svo óútreiknanlegur og breyttist á einni sekúndu. Einn daginn ertu sá besti og daginn eftir ertu sá versti. Þannig það er best að njóta augnabliksins sem ég er að gera. Það sem við erum að upplifa er svo fallegt en sjáum hvað framtíðin ber í skauti sér,“ sagði hann enn fremur.



