Brasilískir fjölmiðlar segja að Neymar gæti verið á förum frá Santos og samið við Boca Juniors í Argentínu eftir óvænta heimsókn á dögunum.
Neymar flaug með Santos í leik gegn San Lorenzo í Argentínu á dögunum og nýtti tímann í að heimsækja æfingasvæði Boca Juniors þar sem hann fundaði með Juan Roman Riquelme, forseta félagsins.
Hann yfirgaf æfingasvæðið með tvær sérsniðnar treyjur, önnur sem var merkt Neymar og svo var hin persónuleg gjöf frá Riquelme.
Boca heldur því fram að heimsóknin hafi aðeins verið merki um vináttuvott þá hefur þetta skapað mikið fjaðrafok í Argentínu og gert stuðningsmenn Boca spennta fyrir brasilíska leikmanninum.
Neymar ræddi einnig við Ander Herrera, fyrrum samherja sinn hjá Paris Saint-Germain, á æfingasvæði Boca sem ætlar að styrkja hópinn verulega í sumar.
Brasilíumaðurinn er ekki sá eini sem hefur verið orðaður við Boca, en Paulo Dybala er einnig sterklega orðaður við félagið sem ætlar sér að komast aftur í fremstu röð í Suður-Ameríku.
Neymar, sem er 34 ára gamall, er samningsbundinn Santos út þetta ár. Samkvæmt brasilískum miðlum skuldar Santos honum dágóða summu af samningnum sem hann skrifaði undir á síðasta ári.
Hann gæti nú viljað skoða nýjar áskoranir, en Argentína er ekki eini mögulegi áfangastaðurinn því hann hefur einnig verið orðaður við félög í Bandaríkjunum og félög í öðrum löndum í Suður-Ameríku.
Þá ýtir rannsókn Santos á hegðun Neymars enn frekar undir mögulega brottför hans, en Robinho Jr. hefur ásakað hann um að beita sig andlegu og líkamlegu ofbeldi á æfingu liðsins á sunnudag.



