Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 09:09
Elvar Geir Magnússon
Alfreð lét þjálfarann fara - Gæti Solskjær tekið við?
Alfreð Finnbogason segir þetta þungan dag fyrir Rosenborg.
Alfreð Finnbogason segir þetta þungan dag fyrir Rosenborg.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er þungur dagur fyrir félagið. Þetta eru vonbrigði. Við reyndum allt sem við gátum til að láta þetta ganga upp," segir Alfreð Finnbogason, yfirmaður fótboltamála hjá Rosenborg, á fréttamannafundi í Noregi í morgun.

Hinn sænski Alfred Johansson hefur verið rekinn sem þjálfari Rosenborg en síðasti leikur hans við stjórnvölinn var 0-3 tap gegn Viking frá Stafangri á föstudaginn.

Rosenborg er sigursælasta félag Noregs en er í þriðja neðsta sæti norsku úrvalsdeildarinnar eftir að hafa spilað sjö leiki á tímabilinu.

Alexander Tettey tekur við Rosenborg til bráðabirgða en hann var einn af aðstoðarmönnum Johansson og lék sem miðjumaður hjá Rosenborg á leikmannaferli sínum auk þess að spila lengi fyrir Norwich.

Norski miðillinn VG veltir upp mögulegum kostum fyrir Rosenborg en þar er Ole Gunnar Solskjær, fyrrum stjóri Manchester United, meðal nafna. Alfreð Finnbogason hefur starfað hjá Rosenborg síðan í janúar.
Slapp
banner
banner
banner