Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   þri 05. maí 2026 08:45
Elvar Geir Magnússon
Foden framlengir - Ekki skorað síðan 14. desember
Mynd: EPA
Hinn 25 ára gamli Phil Foden hefur náð samkomulagi við Manchester City um nýjan fjögurra ára samning, með möguleika á ári til viðbótar að uppfylltum ákvæðum.

Foden verður því bundinn til 2030 en þessi hæfileikaríki leikmaður hefur verið langt frá sínu besta að undanförnu og ekki skorað síðan 14. desember.

Foden kom inn af bekknum í 3-3 jafnteflinu gegn Everton í gær en City er nú fimm stigum á eftir toppliði Arsenal en á leik til góða.

Foden vonast til að vera í enska landsliðshópnum á HM í sumar en þjálfarinn Thomas Tuchel sagði í síðasta mánuði að hann gæti ekki verið öruggur með það þrátt fyrir að hafa byrjað báða leikina í síðasta glugga.

Foden lék sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir City þegar hann var 17 ára. Hann hefur síðan spilað 356 leiki; unnið sex Englandsmeistaratitila, einn Meistaradeildartitil og FA-bikarinn tvívegis.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 36 24 7 5 68 26 +42 79
2 Man City 35 22 8 5 72 32 +40 74
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Liverpool 36 17 8 11 60 48 +12 59
5 Aston Villa 36 17 8 11 50 46 +4 59
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 36 14 11 11 52 42 +10 53
8 Brentford 36 14 9 13 52 49 +3 51
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Everton 36 13 10 13 46 46 0 49
11 Fulham 36 14 6 16 44 50 -6 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 36 13 7 16 50 52 -2 46
14 Leeds 36 10 14 12 48 53 -5 44
15 Crystal Palace 35 11 11 13 38 44 -6 44
16 Nott. Forest 36 11 10 15 45 47 -2 43
17 Tottenham 36 9 11 16 46 55 -9 38
18 West Ham 36 9 9 18 42 62 -20 36
19 Burnley 36 4 9 23 37 73 -36 21
20 Wolves 36 3 9 24 25 66 -41 18
Slapp
banner
banner