Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 09:52
Kári Snorrason
Heiðar Ægis framlengir við Stjörnuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heiðar Ægisson hefur skrifað undir nýjan samning í Garðabænum og er nú samningsbundinn liðinu út tímabilið 2027. Fyrri samningur hefði runnið út eftir tímabilið í ár.

Heiðar, sem er þrítugur hægri bakvörður, er uppalinn hjá Stjörnunni og hefur allan sinn feril leikið með liðinu ef frá er talið tímabilið 2022 þegar hann var hjá Val.

Hann er að koma til baka eftir að hafa verið frá í rúmt ár vegna krossbandaslita. Heiðar hefur komið við sögu í fjórum leikjum í deildinni hingað til.


Slapp
banner
banner