Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 13:04
Kári Snorrason
Leik Vals og ÍBV flýtt um 90 mínútur
Kvenaboltinn
Leikurinn hefst 16:30 á miðvikudaginn.
Leikurinn hefst 16:30 á miðvikudaginn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik Vals og ÍBV í Bestu deild kvenna, sem fram fer á Hlíðarenda á morgun, hefur verið flýtt um 90 mínútur.

Leikurinn átti upphaflega að hefjast klukkan 18.00 en hefst nú klukkan 16.30.

Um er að ræða leik í þriðju umferð deildarinnar. ÍBV hefur farið vel af stað og er í öðru sæti með sex stig eftir fyrstu tvær umferðirnar. Valur er í fimmta sæti með þrjú stig.

Þrír aðrir leikir fara fram í Bestu deild kvenna á morgun, umferðin hefst í kvöld með viðureign Fram og Þróttar.

miðvikudagur 6. maí
Besta kvenna
16:30 Valur-ÍBV (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 Þór/KA-Stjarnan (VÍS völlurinn)
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)
19:15 FH-Grindavík/Njarðvík (Kaplakrikavöllur)

Slapp
banner
banner