Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 09:45
Brynjar Ingi Erluson
Forsetinn staðfestir áhuga Barcelona á Bastoni
Mynd: EPA
Giuseppe Marotta, forseti Inter á Ítalíu, hefur staðfest að spænska félagið Barcelona hafi sýnt ítalska varnarmanninum Alessandro Bastoni áhuga.

Bastoni er einn af eftirsóttu miðvörðum heims og er ekkert leyndarmál að Barcelona vilji fá hann í sumarglugganum.

Ítalinn er með þann eiginleika að vera örvfættur og vel spilandi miðvörður sem getur borið boltann upp völlinn.

Samkvæmt ítölskum miðlum er líklegasta niðurstaðan að hann fari til Barcelona fyrir 65 til 70 milljónir evra, en Marotta hefur staðfest áhuga spænska félagsins í viðtali við Radio Anch'Io Sport.

„Hann er ótrúlega hæfileikaríkur en verið óheppinn á köflum. Allir eru með auga á honum. Hann gerði barnaleg mistök á móti Juventus með því að dýfa sér og var fyrstur til að viðurkenna þau, en við vernduðum hann. Hann er mikill meistari.“

„Ég ætla ekki að neita því að það er áhugi frá Barcelona, en ekkert borðfast. Leikmaður sem tjáir okkur að hann vilji fara má fara, en í augnablikinu er hann ánægður með að vera hér og við erum ánægðir með að halda honum,“
sagði Marotta.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner
banner