Arsenal og Atlético Madrid berjast um sæti í úrslitum Meistaradeildar Evrópu á Emirates-leikvanginum í Lundúnum klukkan 19:00 í kvöld.
Arsenal, sem er einnig á toppnum í ensku úrvalsdeildinni, stefnir að því að vinna tvo stærstu titlana.
Félagið hefur ekki komist í úrslit Meistaradeildarinnar síðan 2006, en þá tapaði liðið fyrir Barcelona. Það á möguleika á að vinna keppnina í fyrsta sinn í sögunni, en það þarf að byrja á því að komast framhjá Atlético sem lék síðast til úrslita árið 2016.
Atlético hefur ekki heldur unnið keppnina, en gæti komist í fjórða úrslitaleikinn með sigri í kvöld.
Staðan er 1-1 í einvíginu, en Viktor Gyökeres skoraði fyrir Arsenal úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks áður en Julian Alvarez jafnaði af punktinum snemma í síðari hálfleiknum.
Leikur dagsins:
19:00 Arsenal - Atletico Madrid
#AtleticoMadrid and #Arsenal are both seeking to end long stretches without a #ChampionsLeague final, although the hosts stretch is now more than double that of Atletico.
— Football España (@footballespana_) May 5, 2026
Diario AS predict the same XI for Atletico, while Arteta could start Saka, Eze, Trossard and Mosquera. pic.twitter.com/Mq1r4D6988

