„Þetta var baráttusigur frá A-Ö, gott að halda markinu hreinu, við erum ekki búnir að vera duglegir að gera það í sumar," sagði Jón Ragnar Jónsson varnarmaður FH eftir 0-1 sigur á Víkingi í kvöld.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 0 - 1 FH
„Þeir komu mér á óvart í seinni hálfleik, sérstaklega miðað við hvernig fyrri hálfleikurinn spilaðist. Þá vorum við með þetta í hendi okkar og þeir voru að beita skyndisóknum. Svo lágu þeir á okkur í restina, en það var aldrei stress i mannskapnum. Bara halda hreinu og þá vinnum við."
„Við skorum eitt,þeir ekki neitt. Þá vinnum við og fáum þrjú stig. Svo er að vinna næsta leik og það væri ekki verra að halda hreinu þar, það er eitthvað sem ég sem varnarmaður vil gera og ég held að allir vilji gera."
„Lenny er líka sáttur með mig því hann er með mig í Fantasy liðinu sínu. Ég var með assist og hélt hreinu svo hann fær einhverja punkta fyrir það."

























