„Þetta er ömurlegt," sagði Eiður Aron Sigurbjörnsson varnarmaður ÍBV eftir 1 - 1 jafntefli við Keflavík í dag en þar með er ÍBV fallið niður í Lengjudeildina.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 1 Keflavík
„Þetta er skrítið, það er búinn að vera kraftur á æfingum í vikunni og trú á verkefninu. Við vorum ekki góðir og fengum á okkur ömurlegt mark. Svo vöðum við í færum í restina og eigum að nýta okkar tækifæri."
Ljóst var að ÍBV hefði þurft að skora nokkur mörk til að bjarga sæti sínu í ljósi stöðunnar í öðrum leikjum.
„Það var bara fúlt að ná ekki að klára okkar allavega," sagði Eiður. „Ef og hefði og allt það en þetta er grautfúlt."
Ljóst er að ÍBV verður því í næst efstu deild að ári og Eiður sér fram á að halda áfram með liðinu. „Ég er með samning í tvö ár í viðbót hérna og við setjumst niður eftir tímabilið og ræðum málin. Ég hef ekkert pælt í því og var bara að pæla í þessum leik. Það er bara svart eins og er. Það vilja allir spila í efstu deild og allt það, en það þarf að fara í smá vinnu og gera hlutina betur, bæði við leikmenn og allir saman."
























