Nágrannar í samkeppni um Anderson - Fernandes á óskalista Bayern og PSG - Liverpool ætlar að endurbyggja hópinn
Bestur í Mjólkurbikarnum - „Klúbbur sem á ekkert að vera í þessari deild“
Tap í uppbótartíma en Konni er stoltur
Fyrirliðinn Eiður Aron: Við ætlum að vinna þessa deild
Álitið - Hver verður markakóngur?
Besta spjallið - Horfðu á upphitunarþáttinn í mynd
Ian Jeffs: Veit ekki hverjar geta mætt á morgun
Guðni Eiríks: Sagði að ef hann myndi ekki taka ákvörðunina þá myndi ég gera það fyrir hann
Álitið - Hver verður efnilegastur?
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
   mið 08. október 2014 22:54
Alexander Freyr Tamimi
Ólafur Þór: Aldrei séð svona fljóta fótboltakonu
Kvenaboltinn
Ólafur skildi ekkert í hraðanum á Jose Nahi.
Ólafur skildi ekkert í hraðanum á Jose Nahi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari Stjörnunnar, var að vonum hundsvekktur eftir 5-2 tap liðsins gegn rússneska liðinu Zvezda í Meistaradeild kvenna í kvöld.

Stjarnan fékk á sig tvö mörk á fyrstu 12 mínútunum og tvö á síðustu tveimur mínútunum en átti að öðru leiti fínan leik. Ólafur viðurkennir að úrslitin séu mikil vonbrigði.

,,Þetta er svekkjandi, sérstaklega miðað við seinni hálfleikinn og seinni partinn í fyrri. Við erum ekki með á nótunum í byrjun og síðustu tvær mínúturnar," sagði Ólafur eftir leikinn.

Framherjinn Jose Nahi var hreint út sagt ótrúleg í leiknum og skoraði fjögur af mörkum gestanna. Hraði hennar og styrkur var eitthvað sem Ólafur sagðist aldrei hafa séð áður.

,,Þessi senter þarna er eitthvað sem við höfum aldrei séð aftur og ekki viss um að við sjáum þetta aftur í framtíðinni, nema þá bara í næstu viku. Það er ótrúlegt að horfa á þetta. Hún er fljót og sterk, við erum búin að sjá hana en við vissum að það væri ekki þessi hraði á henni. Ég hef aldrei séð fótboltakonu svona fljóta og ég er nú búinn að sjá töluvert í þessu," sagði Ólafur.
Slapp
banner
banner
banner