„Ég er náttúrulega bara fyrst og fremst ánægður með að sækja þrjú stig. Það er bara alltaf geggjað. En spilamennskan á köflum, sérstaklega þegar þeir nálgast okkar mark. Við gefum þeim fyrsta markið, annað markið og þriðja. Við komum okkur í rosalega erfiða stöðu,'' sagði Arnar Grétarsson, þjálfari KA, eftir ævintýralegan 4-3 sigur á ÍBV í Bestu-deild karla í dag.
Lestu um leikinn: KA 4 - 3 ÍBV
Hann hélt áfram: „Það er bara erfitt að vinna fótboltaleiki þegar þú þarft að skora fjögur mörk, en við höfðum trú á því og töluðum um það í hálfleik að ef að við myndum setja smá trukk í þetta að þá gætum við landað sigri. Strákarnir reyndu og höfðu trú og við náðum að landa, en við vitum alveg að ÍBV eru búnir að gefa öllum leik og þeir eru aggressívir, þeir hlaupa aftur fyrir okkur og það var alveg vitað að þetta yrði erfiður leikur.''
Eins og Arnar hafði orð á að þá voru KA menn sjálfum sér verstir á köflum í leiknum. ÍBV liðið pressaði þá hátt, en heimamenn vildu spila út úr vörninni. Planið gekk brösuglega í dag og oftar en einu sinni fylgdi ekki adressa sendingunni og Eyjamenn unnu boltann á álitlegum stöðum.
„Við erum svo miklir klaufar, það verður að segjast alveg eins og er og gerandi þau mistök sem við gerum í leiknum. Við gerum risamistök á móti Val og í fyrsta markinu, öðru markinu... Það geta alveg komið slys. Þar fær einhver boltann í hendina, hárrétt hjá Þorvaldi, það var víti.''
Hann bætti við: „Við höfum hingað til verið helvíti öflugir að fá ekki á okkur mörk en nú erum við bara "basically" að gefa þau.''
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan.






















