Elvar Geir Magnússon skrifar frá Lettlandi
Gylfi Þór Sigurðsson átti enn einn stórleikinn í 3-0 sigri Íslands gegn Lettlandi í undankeppni EM 2016 í Riga í kvöld.
Þessi öflugi miðjumaður skoraði fyrsta mark Íslands og þrátt fyrir að hafa meiðst strax í byrjun leiks hélt hann áfram að spila.
Þessi öflugi miðjumaður skoraði fyrsta mark Íslands og þrátt fyrir að hafa meiðst strax í byrjun leiks hélt hann áfram að spila.
,,Við vorum búnir að fara yfir leikinn hjá Lettum alla vikuna og vissum að þeir myndu verjast á mörgum mönnum. Við þurftum að vera þolinmóðir og halda áfram að gera sömu hlutina," sagði Gylfi eftir leikinn.
,,Ég fékk högg eftir eina mínútu og fann mjög mikið til í ökklanum, ég var að komast í skotstöður á hægri löppinni en þurfti að skipta yfir á vinstri því ég gat ekki skotið með hægri. En svo byrjuðu verkjatöflurnar að "kicka" inn í hálfleik og ég náði að skjóta með hægri löppinni í seinni hálfleik."






















