Pétur Pétursson þjálfari Fram var að vonum svekktur eftir tap sinna manna gegn sterku liði Selfyssinga í kvöld. Fram hefur verið í miklu basli í sumar.
Lestu um leikinn: Selfoss 2 - 1 Fram
„Mér fannst við vera að ná leiknum yfir í seinni hálfleik þegar við fáum á okkur þetta mark. Markmaðurinn hjá okkur er að sparka út og boltinn er negldur fram í fyrsta og við fáum á okkur mark. En svo byrjum við seinni hálfleik en það mætti enginn til leiks."
„Við getum tekið það úr að menn þurfa að mæta til leiks."sagði Pétur þegar hann var spurður hvort liðið gæti tekið eitthvað útúr þessum leik.
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.





















