Pavel Vrba, þjálfari Tékka, var vonsvikinn með tapið gegn Íslandi á Laugardalsvellinum í kvöld.
Tékkar glopruðu niður 1-0 forystu á rúmlega fimmtán mínútna kafla í seinni hálfleik en liðið hafði unnið báða útileiki sína í riðlinum þegar kom að leiknum í kvöld.
„Ísland hefur bætt sig mikið síðastliðinn fimm ár. Ísland hefur unnið mikið í fótboltamálum sínum, sérstaklega í yngri flokkunum og íslenska liðið er mjög gott. Ísland er andstæðingur sem enginn vill mæta." var meðal þess sem Vrba sagði á fréttamannafundi eftir leikinn.
Hægt er að sjá fundinn í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.






















