Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   mán 13. apríl 2026 16:08
Kári Snorrason
Samantekt
Tíu uppaldir Þórsarar byrjuðu á Hlíðarenda - Enginn Valsari
Í byrjunarliði Þórs gegn Val voru átta uppaldnir Þórsarar.
Í byrjunarliði Þórs gegn Val voru átta uppaldnir Þórsarar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Höskuldur Gunnlaugsson og Andri Rafn Yeoman eru báðir uppaldnir í Breiðabliki.
Höskuldur Gunnlaugsson og Andri Rafn Yeoman eru báðir uppaldnir í Breiðabliki.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrsta umferð Bestu deildarinnar lauk í gær með 3-3 jafntefli Fram og ÍA. Undirritaður tók saman uppaldna leikmenn í byrjunarliðum hvers liðs úr þessari fyrstu umferð.

Miðað er við leiki í 2. flokki og neðar, en þó eru gerðar nokkrar undantekningar og má sjá þær hér fyrir neðan sem og listann.

Þór voru hlutskarpastir í þessum flokki með einungis þrjá aðkomumenn í byrjunarliði sínu. Þar á eftir var Breiðablik með sex uppaldna leikmenn.

Í byrjunarliði Vals voru engir uppaldnir leikmenn sem mættu Þórsurum sem voru, eins og áður segir með átta. Til þess má geta að tveir uppaldnir Þórsarar voru í byrjunarliði Vals og voru því alls tíu uppaldnir Þórsarar sem byrjuðu leikinn á Hlíðarenda.

Uppaldnir í byrjunarliði:
Þór - 8
Breiðablik - 6
ÍBV - 4
KR - 4
ÍA - 3
FH - 3
KA - 3
Fram - 2
Víkingur - 1
Keflavík - 1
Stjarnan - 1
Valur - 0

Ásgeir Orri Magnússon, markvörður Keflavíkur, spilaði eitt sumar með 2. flokki Keflavíkur en þar áður hafði hann verið í Njarðvík og er hann því ekki talinn með.

Freyr Sigurðsson, leikmaður Fram, spilaði sömuleiðis með 2. flokki Fram eitt sumar en hann er uppalinn Hornfirðingur og telst hann því ekki sem uppalinn leikmaður.

Þá er Jón Gísli Eyland uppalinn á Sauðárkróki en gekk til liðs við ÍA á sextánda aldursári, hann er ekki talinn sem uppalinn Skagamaður á listanum.
Innkastið - Ferskir nýliðar og vandræðagangur hjá Val
Slapp
banner
banner