,,Maður er andskoti smeykur við þetta," segir Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttamaður á Stöð 2 um leik Íslands og Hollands í undankeppni HM í kvöld.
,,Þetta er fjórða besta lið heims samkvæmt styrkleikalistanum og við sáum það á HM í sumar að þetta er frábært lið."
,,Þetta er fjórða besta lið heims samkvæmt styrkleikalistanum og við sáum það á HM í sumar að þetta er frábært lið."
,,Þeir eru með menn eins og van Persie, Sneijder og De Jong. Þetta eru ekki bara nöfnin heldur eru þetta flottir leikmenn."
Valtýr segir að íslenska landsliðið sé búið að undirbúa sig af kostgæfni fyrir leikinn og möguleiki sé á hagstæðum úrslitum með toppleik.
,,Landsliðsteymið hefur kortlagt Hollendingana alveg. Hvernig þeir hreyfa sig, sendingarleiðir og hvernig á að bregðast við. Ef leikmenn Íslands, með sjálfstraustið í botni, eru með hausinn fullkomlega stilltan þá eigum við séns. Við eigum séns en við þurfum að ná algjörum toppleik."
Valtýr Björn vonast eftir jafntefli á Laugardalsvelli í kvöld. ,,Ég sagði í morgun að ég væri voðalega hræddur um að þetta yrði 0-3. Vonir og óskir standa fyrir jafntefli. 1-1 eða 1-0 þar sem er varist á vítateigslínunni í 20 mínútur. Ég vona bara að við fáum úrslit úr þessum leik."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















