„Er það ekki bara fín spá?" sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Gróttu, þegar hann ræddi við Fótbolta.net í dag. Gróttu er spáð tíunda sæti Lengjudeildarinnar af fyrirliðum og þjálfurum deildarinnar.
„Ég held að það sé bara fínt. Ég skil það svo sem alveg vel. Liðið er að koma úr 2. deild, ungt og óreynt lið. Auðvitað viljum við gera betur, það er bara eins og það er. Við teljum okkur vera samkeppnishæfa í þessari deild. Deildin er sterk en við erum kannski með fimm leikmenn sem hafa spilað í þessari deild. Það voru flestallir að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokksfótbolta í 2. deild í fyrra. Ég skil þessa spá vel."
„Ég held að það sé bara fínt. Ég skil það svo sem alveg vel. Liðið er að koma úr 2. deild, ungt og óreynt lið. Auðvitað viljum við gera betur, það er bara eins og það er. Við teljum okkur vera samkeppnishæfa í þessari deild. Deildin er sterk en við erum kannski með fimm leikmenn sem hafa spilað í þessari deild. Það voru flestallir að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokksfótbolta í 2. deild í fyrra. Ég skil þessa spá vel."
„Þetta sýnir það að fólk hefur trú á okkur, allavega að vera ekki að falla. Þetta er bara spá en við þurfum að hafa trú á okkur og spila skemmtilegan fótbolta. Ég hef mikla trú á að við getum staðið okkur vel í þessari deild. Við erum búnir að mæta fullt af liðum úr þessari deild í vetur og spiluðum líka í fyrra við lið úr Bestu deildinni. Við vorum að standa okkur ágætlega og ég tel okkur vera samkeppnishæfir í þessari deild."
Eftir að við fundum taktinn vorum við nánast ósigrandi
Rúnar Páll tók við Gróttu fyrir síðasta tímabil og stýrði liðinu upp úr 2. deild í fyrstu tilraun.
„Síðasta tímabil var náttúrulega bara mjög fínt. Við vorum svolítið lengi í gang en eftir að við fundum taktinn vorum við nánast ósigrandi. Við spiluðum ótrúlega vel síðari hluta móts í fyrra," segir Rúnar.
„Þetta voru ekki auðveldir sigrar, mjög harðri sigrar og mikil vinnusemi. 2. deildin er fáránlega skemmtileg og öflug deild. Við komum vel undirbúnir inn í Lengjudeildina út frá því sem við gerðum í fyrra. Þetta var nýtt lið í fyrra og við byggjum liðið okkar í dag á þeim strákum sem voru þar auk þess sem við fáum nokkra nýja leikmenn inn. Okkur hlakkar mikið til og erum vel gíraðir."
Hef trú á því að deildin verði fáránlega skemmtileg
Rúnar segir að það hafi gengið þokkalega á undirbúningstímabilinu en hann býst við mjög sterkri Lengjudeild í sumar.
„Það hefur gengið þokkalega á undirbúningstímabilinu. Við spiluðum fimm leiki í Lengjubikarnum og þeir eru nýttir til að leyfa öllum að spila og sjá hvar menn eru staddir. Síðustu fjórir, fimm leikir hafa verið fínir. Við höfum fengið sjálfstraust af því að vinna leiki. Það hafa margir fengið smjörþefinn og mikið af ungum strákum að stíga sín fyrstu spor í meistaraflokki. Ég er ánægður með veturinn eins og hann hefur liðið," segir Rúnar Páll.
„Það eru sjö eða átta lið í deildinni sem leggja mikinn pening í liðin sín og ætla að berjast um að fara upp. Við getum alveg barist um að enda í topp fimm en við erum ekki að leggja eins mikla fjármuni í þetta og önnur lið. Ég held að deildin verði fáránlega sterk. Það eru ótrúlega sterkir leikmenn í þessari deild og öflugir þjálfarar. Ég hef trú á því að deildin verði fáránlega skemmtileg. Það verður barist um þessi topp fimm sæti þangað til 5. september rennur í garð. Það eru mörg lið sem gera tilkall að vinna deildina og svo eru fleiri lið að berjast um topp fimm."
„Við ætlum að reyna að standa okkur eins vel og við getum og reyna að fara inn í hvern einasta leik til að vinna og eiga góða frammistöðu. Við teljum okkur geta það," bætti þjálfari Gróttumanna við.
Frábært að vera í Gróttu
Rúnar var þjálfari Stjörnunnar frá 2014 til 2021. Á þeim tíma varð Stjarnan bæði Íslands- og bikarmeistari, ásamt því að fara í mikið og eftirminnilegt Evrópuævintýri. Rúnar Páll stýrði Fylki áður en hann tók við Gróttu. Þetta eru allt ólík verkefni.
„Ég ætla ekki að bera þetta saman, þetta eru allt ólík félög með ólíkar nálganir. Það er frábært að vera í Gróttu. Það er ótrúlega skemmtilegur leikmannahópur hérna, frábært þjálfarateymi í kringum mig og vel staðið að málum. Grótta er lítið félag með öðruvísi strúktúr en flestöll önnur lið á landinu varðandi leikmannamál, launatölur og annað slíkt. Við byggjum mikið á ungum strákum og gefum þeim tækifæri. Ég er ótrúlega ánægður í Gróttu og þetta er skemmtilegt verkefni," segir Rúnar en hann hefur gaman að því að vinna með leikmönnunum í Gróttu.
„Að vera í Lengjudeildinni er verðugt verkefni fyrir okkur. Það er yndislegt að vinna með þessum ungu leikmönnum. Ég er ekki mikill talsmaður þess að vera með lánsmenn. Við erum með einn lánsmann, Björgvin Brima frá Víkingi, sem við fóstruðum í 2. deildinni í fyrra. Ég tók fyrir það að vera með lánsmenn þannig að við getum byggt á einhverju til framtíðar. Það er breyting fyrir Gróttu. Við erum með fullt af ungum strákum og erum með skynsamt fjármagn í þessari 1. deild. Ég tel að við getum alveg náð árangri. Þetta verður spennandi."
Að lokum sagði hann:
„Auðvitað vill maður að fólkið á Nesinu komi að styðja okkur. Þegar á reyndi í fyrra kom fólk að styðja okkur og vonandi kemur fólk á Vivaldivöllinn í sumar sem og á útileikina því það hjálpar okkur mikið."



