Ungstirnið Einar Freyr Halldórsson var valinn í sterkasta lið umferðarinnar hér á Fótbolta.net fyrir frammistöðu sína í sigri Þórs á Val síðastliðinn sunnudag. Hann lagði upp fyrra mark Þórs og fór mikið fyrir honum á miðjunni.
Einar, sem er sautján ára miðjumaður, er einn efnilegasti leikmaður deildarinnar og hafa mörg lið erlendis frá sýnt honum áhuga. Þar á meðal Brann og austurrísku meistararnir Sturm Graz, sem hafa bæði boðið honum á reynslu.

„Einar Freyr var bestur á vellinum, hann var ekkert eðlilega góður. Auðvitað spilar vonin sem maður bindur við hann inn í þetta, en hann var jafn góður og hann var í Lengjudeildinni,“ sagði Sæbjörn Steinke, fréttamaður Fótbolta.net og stuðningsmaður Þórs, í Innkastinu.
„Ég hafði áhyggjur eftir leik að hann gæti farið í glugganum. Það er áhugi á honum erlendis og menn vita alveg hver þetta er,“ sagði Sæbjörn að lokum.
200milljónir, þá er ég til í að segja já. Við bjuggum hann bara til.
— Sæbjörn Steinke (@saebjornth) April 12, 2026