Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 21:42
Brynjar Ingi Erluson
Slot og Konate ekki bjartsýnir með meiðsli Ekitike - „Held að þetta sé slæmt“
Hugo Ekitike verður líklega lengi frá
Hugo Ekitike verður líklega lengi frá
Mynd: EPA
Hugo Ekitike, framherji Liverpool á Englandi, verður líklega lengi frá eftir að hafa meiðst í 2-0 tapinu gegn Paris Saint-Germain á Anfield í kvöld.

Frakkinn meiddist eftir hálftímaleik og var borinn af velli á sjúkrabörum.

Enginn kom við Ekitike er hann meiddist og við fyrstu sýn virðist hann hafa slitið hásin sem gæti haldið honum frá í átta til tólf mánuði.

Arne Slot, stjóri Liverpool, segir útlitið ekki gott.

„Þetta lítur ekki vel út. Bíðum og sjáum til með það, en ég hef ekki séð hann því hann fór heim í seinni hálfleik,“ sagði Slot.

Ibrahima Konate, samlandi Ekitike og liðsfélagi, sendir honum stuðningskveðjur á þessum erfiðu tímum.

„Ég held að þetta sé mjög slæmt, en ég vil ekki tala um það út af HM og öllu því sem er að gerast í sumar. Þetta er ótrúlega erfitt fyrir hann á þessari stundu og sendi ég honum bænir og góða strauma,“ sagði Konate.

Vont fyrir Liverpool sem missti Alexander Isak í erfið meiðsli í desember. Hann byrjaði sinn fyrsta leik í kvöld eftir að hafa verið frá í fjóra mánuði, en þá missir Liverpool annan framherja á mikilvægum tímapunkti tímabilsins.
Slapp
banner