Svona var byrjunarliðið í síðasta heimaleik. Sá leikur var spilaður á AVIS vellinum, heimavelli Þróttar.
„Þær hafa ákveðna hugmyndafræði sem þær spila eftir og leita mikið í hana. Þær eru mjög beinskeyttar, spila mikið upp kantana og koma með bolta milli hafsents og bakvarðar. Kantmennirnir eru hættulegir, góðir leikmenn. Styrkleiki þeirra er líka föst leikatriði, þær hafa skorað mikið úr þeim og refsað liðum með þeim. Skyndisóknir og föst leikatriði eru þeirra helstu hættur," sagði landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson á fréttamannafundi í gær.
Landsliðið tekur á móti Úkraínu á Laugardalsvelli klukkan 18:30 í kvöld og er um mjög mikilvægan leik í undankeppni HM að ræða. Bæði lið eru án stiga eftir leiki gegn Spáni og Englandi í fyrstu tveimur umferðum riðilsins.
Landsliðið tekur á móti Úkraínu á Laugardalsvelli klukkan 18:30 í kvöld og er um mjög mikilvægan leik í undankeppni HM að ræða. Bæði lið eru án stiga eftir leiki gegn Spáni og Englandi í fyrstu tveimur umferðum riðilsins.
Lestu um leikinn: Ísland 0 - 0 Úkraína
Linda gæti tekið þátt í leiknum
Linda Líf Boama er nýliði í hópnum og kemur framherjinn heit inn í landsliðsverkefnið eftir að hafa byrjað tímabilið frábærlega með Kristianstad í Svíþjóð. Gæti hún tekið þátt í leiknum?
„Það gæti allt eins verið, það kemur allt í ljós. Auðvitað skiptir máli að leikmanninum líði vel á vellinum og líði vel þegar hann kemur hingað, komi með jákvæða strauma og jákvæða líðan. Hún er alveg eins líkleg til að taka eitthvað þátt í leiknum."
Allar heilar
Eru allir heilir?
„Það eru allir leikmenn heilir og allir leikmenn hafa æft allan tímann í verkefninu," sagði Steini á fundinum í gær.
Þurfum að spila á ákveðinn hátt
Hvað er það sem við megum eiga von á í leiknum á morgun?
„Það er ljóst að við þurfum að spila á ákveðinn hátt á móti þeim. Á móti Skotlandi og Austurríki var Úkraína 30% með boltann. Það hefur verið gegnumgangandi pressa, góðar í endur-pressu og þær eru góðar að sækja hratt þegar þær vinna boltann. Við þurfum að passa að tapa ekki boltanum á slæmum stöðum. Við búumst við því að vera meira með boltann en í undanförnum leikjum. Þú mátt ekki gefa neitt á móti þeim, við þurfum að spila inn í ákveðin svæði og leita að ákveðnum leiðum og opnunum sem munu myndast í leik þeirra. Ég vonast að það muni sjást í leiknum það sem við ætlum okkur að gera og það verði markvisst gert. Þetta er pólitískt svar."
Uppskriftin að sigri
Hver er lykillinn að sigri gegn Úkraínu?
„Spila leikinn af krafti, vinna seinni bolta og vinna návígi."
Í fyrsta sinn í nýju herbergi
Undirbúningurinn fyrir þennan leik hefur verið lengri en fyrir síðustu leiki á undan og fleiri æfingar. Kvennalandsliðið dvelur á Grand Hotel í þessu verkefni en landsliðið hefur yfirleitt verið á Hilton Nordica.
„Við höfum nýtt tímann vel, það var frí á föstudaginn þar sem við töldum að það væri ekki hægt að æfa alveg stanslaust alla daga fram að leik. Það er breyting að við erum á öðru hóteli, ég er ekki á herbergi 732 eins og verið hefur. Það er kannski aðal uppbrotið að vera á öðru hóteli og maður er ekki í sama herbergi og maður hefur verið í í öllum landsleikjunum hérna heima," sagði Steini.
Landslið kvenna - Undankeppni HM, Riðill 3
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. England | 2 | 2 | 0 | 0 | 8 - 1 | +7 | 6 |
| 2. Spánn | 2 | 2 | 0 | 0 | 6 - 1 | +5 | 6 |
| 3. Ísland | 2 | 0 | 2 | 0 | 0 - 5 | -5 | 0 |
| 4. Úkraína | 2 | 0 | 2 | 0 | 2 - 9 | -7 | 0 |



