Bayern Munchen og Arsenal tryggðu sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Bayern komst áfram eftir sigur á Real Madrid í mögnuðum leik. Staðan var 3-2 fyrir Real Madrid í hálfleik, samanlagt 4-4. En Bayern skoraði tvö mörk undir lokin eftir að Eduardo Camavinga fékk að líta rauða spjaldið.
Michael Olise innsiglaði sigur Bayern með frábæru marki í blálokin og hann var valinn maður leiksins að mati Sky Sports. Hann fékk átta í einkunn eins og Luis Diaz og Harry Kane sem komust einnig á blað. Eder Militao, Arda Guler og Kylian Mbappe fengu einnig átta. Andriy Lunin, markvörður Real, átti erfitt uppdráttar og fékk fimm, eins og kollegi hans, Manuel Neuer í marki Bayern.
Það var bragðdauft þegar Arsenal gerði markalaust jafntefli gegn Sporting á Emirates en Arsenal komst áfram eftir 1-0 sigur í fyrri leiknum. Sky Sports valdi Gabriel Martinelli besta mann Arsenal. David Raya var hins vegar mjög óöruggur og Viktor Gyökeres ósýnilegur í þær 56 mínútur sem hann spilaði og þeir fá báðir falleinkunn.

Bayern Munich: Neuer (5), Laimer (7), Upamecano (6), Tah (6), Stanisic (6), Kimmich (7), Pavlovic (7), Olise (8), Gnabry (6), Diaz (8), Kane (8).
Varamenn: Davies (7), Musiala (7).
Real Madrid: Lunin (5), Alexander-Arnold (7), Militao (8), Rudiger (7), Mendy (7), Valverde (7), Bellingham (7), Guler (8), Diaz (7), Vinicius Jr (7), Mbappe (8).
Varamenn: Camavinga (3), Mastantuono og Pitarch (Spiluðu ekki nóg).
Arsenal: Raya (4), Hincapié (6), Gabriel (6), Saliba (6), Mosquera (6), Rice (6), Zubimendi (6), Eze (6), Martinelli (7), Madueke (5), Gykoreres (4)
Varamenn: Havertz (6), Dowman (7), Jesus og Trossard (Spiluðu ekki nóg)